Feb 9, 2006
Það gekk ekkert hjá mér í gær að setja inn myndir þannig ég ætla að reyna aftur núna.. Vonum að að gangi örlítið betur!

Við Brynja svo ógurlega hressar á leið á Skímó beibí..:)

Gunnar Ólason, söngvari með MEIRU!! Og heitur of course..
Ok, þetta er allavega byrjunin.. Það vilja ekki fleiri myndir koma eins og er þannig þetta kemur sennilega bara í einhverjum leiðindarskömmtum!!
Bara veriði róleg, ég bið..
Posted at 01:06 am by urduromars
Feb 6, 2006
Jahá, ég er komin aftur HINGAÐ!!!!
Já, ég held að það sé alveg komin tími á það að breyta aðeins til og koma hingað aftur! Blog.central fokkið er alltaf að fara í klessu og ég er eiginlega bara búin að fá nóg af því..
Þannig veriði velkomin hér og ég blogga meira síðar! Allir linkar eru í fokki, nenni ekki að hafa þetta í stafrófsröð...Er það nokkuð möst??? Neinei, heyrðu.. Ég ætla að leyfa mér að enda þetta á einni skemmtilegri mynd síðan á ballinu...:) Okeiiiii????? Sjást...

Ég og Linda elsku svo æææææææægilega hressar BAKSVIÐS á SKÍMÓ um helgina..:)
OKEIIIII...........
SJÁUMST með Silvíu Nótt!!:)
Posted at 05:33 am by urduromars
Oct 21, 2004
Já ég gafst upp...........Alltaf gaman að prufa e-ð nýtt!!!!:)
Núna er það bara..:
www.blog.central.is/urduromars
Það var gaman að vera með ykkur....Blesssss....:)
Posted at 11:57 am by urduromars
Oct 16, 2004
Jæja, þá er sko komið að aðalviðburði...uuu....helgarinnar allavega.
PAPAR Í KVÖLD...VALASKJÁLF...KL. 2300....:):):):)
...Djöfull líst minni vel á það maður..:) Búin að bíða með mikilli eftirvæntingu í lengri tíma. Svo eru bara e-rjir fóbó-nerds á akureyri og þykjast ætla að djamma í kvöld í sjallanum á skímó..Kommon krakkar...Diddsiði bara fótboltan og komiði aftur austur á ball...Ekki það að þið séuð e-ð ómissandi á djammið haaaaaahahahaha;) En gærkvöldið var frekar skemmtilegt, ekki hægt að neita því...Láran aðalpleisið greinilega..:) Ekki spurning, eitt gott lárudjamm er alltaf ómissandi...Ok, ég er hætt að rugla...En karókíið átti völdin þar í gærkv. og ég verð víst að viðurkenna það að ég missti mig aðeins í því...Eftir ca. 2 - 3 bjóra þá var maður hress að syngja...:) Ásamt henni Sigfríði, hefði ekki getað þetta án hennar...Enda átti hún pleisið maður...
En já, Liverpool vann í dag...Stór sigur hjá köppunum...4 - 2..:) Auðvitað, afsannar allavega kenninguna hjá Grettisbúum þarna í Reykjavíkinni...Að Liverpool sé ekki besta lið í heimi..:)
En ég nenni ekki að skrifa neitt meira, ætla að fara að gera e-ð annað...Sjáumst á Papaballi gott fólk..:)
Posted at 10:09 am by urduromars
Oct 8, 2004
Eagles - partý á Garðarsvegi 18!
Já, hann karl faðir minn nokkur er alveg að missa sig í Eagles þessa stundina, fjölskyldumeðlima til mikillar skemmtunar..Get ekki sagt annað..:) Föstudagskvöld og sonna...Er e-ð betra að gera en að hlusta á Eagles og vera í tölvunni með handklæðið um hárið og næstum því komin í náttfötin..? Hélt ekki.
En já, stelpan er komin aftur heim í fjörðinn stormasama verð ég að segja...Hvasst, kalt, og ennþá meira hvasst. Og fjöllin eru orðin HVÍT!!!...Hvað er málið???...Það er október, það á ekki að byrja að snjóa og kólna fyrr en í mesta lagi byrjun desember sko. En who cares...
En HAMINGJUÓSKIR VIKUNNAR: Þær fá hún Silja Þórunn frænka mín, hún eignaðist lítinn gullfallegan prins síðasta föstudag...Fyrir bara nákvæmlega viku síðan..Um kl. hálf12 þann 1.október:) Til hamingju með það...
Einnig vil ég óska þeim Sonju Björk og Ragga til hamingju með litlu dúlluna sína:)
Oooog ef við missum okkur aðeins í hamingjuóskum þá á hann Hákon nokkur Seljan afmæli í dag, 18 ára kappinn..:) Ekki ónýtt það, til hamingu kallinn:)
Svo vil ég nú koma einu á framfæri til þeirra Þóru Lindar og Þóru Kristínar:
Stelpur mínar, það er PAPABALL í Valaskjálf Egilsstöðum þann 16. október og tek ekki annað í mál nema að þið mætið í ykkar fínasta pússi, hressari sem ALDREI fyrr á það ball með mér og Söndru Rut....:) Er það ekki málið???????
Vona að ég hafi náð athygli ykkar elskurnar...Vinsamtlegast sýnið viðbrögð á spjallborðið hér til hliðar:)
Jæja, á maður að fara að gera e-ð??...Er að spá í að fara að horfa á Idolið sem hann pabbi tók upp fyrir mig og fara síðan kannski e-ð smá út??..Maður veit aldrei, þangað til næst börnin mín...Takk fyrir mig...
Hey já, Helga mín ástin...Þú mátt endilega taka þessi skilaboð hérna fyrir ofan líka til þín, ekki svo ónýtt það:)
Posted at 04:28 pm by urduromars
Sep 28, 2004
Erum við að tala saman eða ?
Greinilega ekki fyrst maður er búin að vera alveg anskoti slappur við skriftirnar:/ Ekki mér að kenna, greinilega ekki...:) En ég reyni að bæta þetta upp með að segja e-ð skemmtilegt núna.
Ég semsagt gerði ekki stakan hlut um helgina, nema það að vinna og vinna aðeins meira! Þegar foreldrar manns eru farnir á djammið á Seyðisfirði þá er alveg eins gott fyrir mann að vera bara heima hjá sér að passa börnin þeirra, sem er einmitt það sem ég gerði... Svona eiginlega, við Kæja kíktum hring á kagganum hans pabba en fyrst að lífið var heldur dautt þá ákváðum við að fara bara heim að sofa um tvö. Það var líka bara alveg eins gott, ágætt að vera laus við þynnku eina helgi. Því ég held að næsta helgi stefni í alveg eins gott djamm:) ....Allavega stefni ég á það ásamt ýmsum skjátum í heitapottspartý...Staðsetningin er leyndó, enda verður þetta nottla bara stelpudjamm sem er mjög fínt:)
BEACH BOYS eru að koma til landsins hvorki meira né minna...Ééééééég þangað...:)
En ég nenni þessu ekki, ég skrifa meira þegar ég hef e-ð áhrifamikið að segja..:)
Posted at 09:24 am by urduromars
Sep 19, 2004
Jæja, ég ákvað hérna í makindum mínum og þynnku...Fyrst maður hefur ekkert að gera og er loksins komin með ADSL..Afhverju ekki að fara bara að setja inn myndir sem maður á hérna í tölvunni síðan mjög svo snemma í sumar..Veistu, það var ágætis hugmynd hjá mér og krakkar...Það eru komnar inn myndir...Gamlar reyndar en mjöööög skemmtilegar...Endilega líkiði inná www.photos.heremy.com/urduromars og njótið vel:)
En já, viðburðarrík helgi..Neee ekki svo mikið...Bara þetta venjulega djamm...Aldan, Láran..En það var nú samt afmælispartý heima hjá Ívari Pétri og það var mikið af utanaðkomandi fólki í bænum, sem var alls ekki svo slæmt:)
En ég veit ekkert hvað skal segja nema skooooðið myndirnar börnin mín....Blesssss.........:)
Posted at 10:56 am by urduromars
Sep 8, 2004
Já, ég verð að segja að það er nú heldur skemmtileg helgi að baki.
Busunin var nottla algjör snilld, þar sem ég og fleiri góðir vorum böðlar að fíla okkur í tææætlur. Busagreyin vissu ekkert hvað þau áttu að gera og grétu bara úr hræðslu. Neinei ekki alveg kannski, en við vorum vopnuð ýmsum vopnum.. Aðal vopnið mitt var nú bara mysan góða sem ég lét fólkið drekka. Þetta er hollt krakkar kommon..:) Æjæjæj, ég var samt alveg að fíla það að vera svona leiðinleg og að skipa þeim fyrir, gæti alveg eins vanist þessu sko..Er ekki einhver busi sem býðst til þess að vera þjónn minn?
En já, eftir þessa misþyrmingar á litlu busunum var haldið í smá samkundu í íbúðina hennar Lísu Leifs þar sem var pöntuð pizza, drukkin bjór og bolla í boði. En þegar að fólk var orðið heldur ölvað var haldið í teiti hjá honum Óttari... Drukkinn meiri bjór og svo haldið á ball. Ballið fannst mér alveg allt í lagi þótt að fólk hafi verið að segja að þetta hafi ekki verið neitt skemmtilegt. En mér fannst það, þrátt fyrir annarlegt ástand. Full fullt af slúðri sem kemur væntanlega fram í pésanum von bráðar þannig bíðið bara spennt.
Páll Óskar....VAR GEGGJAÐUR!!!!!! Sjiiitt hvað það var ógeðslega gaman maður, hef sennilega sjaldan skemmt mér jafn vel á balli, eða rétta orðið væri sennilega að kalla þetta diskó eða e-ð...Júróvisjónsveiflur hérna í hverju horni og alveg ógeðslega gaman maður. Og mætingin var ekki slöpp, ég bjóst við verri mætingu en svo var hún ekki. Algjör snilld...Palli, ég elska þig.
En já, svo er bara Í SVÖRTUM FÖTUM næstu helgi og allir að mæta þangað, Jónsi maður...úffff....heitur...ekkert annað. Allir að mæta í teiti, ekki verra:)
En ég nenni þessu ekki lengur, bless börnin mín...Heyrumst seinna!
Posted at 07:08 am by urduromars
Sep 1, 2004
Skóli, skóli...busar, busar!
Við erum að tala um 100 - 120 busa í þessum brjálaða skóla. Og þetta eru sko ekkert venjulegir busar...Þeir hlýða ekki okkur böðlunum, aðallega e-rjar gelgjur sem vita ekkert útaf öllu meikinu EN allavega, þeir eru alveg snabrjálaðir og vita ekkert í sinn haus. Neineinei, þetta var nú heldur fullt gróft og ég tek þetta nú tilbaka...En það eru nú nokkrir uppreynsarseggir í þessum stóra hóp sem er ekki að fara alltof vel í böðlana.. Vonum bara að þeir eigi eftir að hugsa sinn gang og læra að HLÝÐA!!!! Og hver má taka þetta til sín sem hann vill...:)
EN ÉG ÁTTI AFMÆLI Í GÆR:)
Það er sennilega það sem skiptir öllu máli maður:) Ég átti virkilega notalegan dag í góðra vina hópi. Fórum, ég, Karen, Katla, Steinar Pálmi og Lísa Leifs út að borða á Ölduna sem var sennilega án efa besti matur sem ég hef smakkað. Mikið rosalega var þetta svakalega gott:) Ég var sko alveg að fíla mig þarna, svona fín og fáguð.. Ég fékk mér í forrétt rosalegan góðan mývatnsreyktan silung, aðalrétt nautakjöt og e-ð girnilegt gums með og svo punkturinn yfir i-ið var það franska súkkulaðikakan, með "krem búrlei" og ís. Þetta var alveg fyrsta flokks. Svo í dag fékk ég smá veislu, Ingunn og Karen voru svo sætar að baka Betty Krocker handa stelpunni sem féll í virkilega góðan farveg hjá mér og öðrum góðum. Svo misstum við Brynja okkur í SingStar sem var helvíti skemmtilegt...Ég vann oft, en hún líka..:) Við erum geggjaðar, ætlum sennilega að stofna dúet og meikaða á Íslandi...Nylon hvað skiljiði...:) Haaaahahahahaha...........................
HUGINN ER KOMIN UPP UM DEILD...:)
Sem er einnig alveg geðveik frétt....Þeir stóðu sig allllveg frrrrrábærlega strákarnir, allir bæjarbúar enn í sæluvímu..Og einhverjir kennarar einnig í ME skilst mér...Unnu Skallagrím 4 - 2...Eða samtals 8 - 4...:) ALveg frábær árangur, þeir taka síðan bara 2. deildina næsta sumar...Ekki nokkur spurning...:)
En ég ætla að fara að gera e-ð núna, nenni þessu ekki....Sjáumst áááááá ballli á föst oooooooooog PÁLI FOOOKKING ÓSKARI á laugardaginn....Þangað til næst....Bleeesss...
Posted at 03:25 pm by urduromars
Aug 29, 2004
Jææææja, hvernig væri að blogga??
Já veistu hvað ég held að það sé ekki svo slæm hugmynd..:) Það er nebbla allt að gerast...
Hún Dagný Erla er stungin af til Danmerkur þar sem hún verður fram að jólum.. Og þín er saknað, alveg óheyrilega mikið. Það er ekki svo auðvelt að vera elsta barnið á heimilinu núna hehe:) Óska þér allt hið besta þarna úti..
Huginn vann Skallagrím á Borgarnesi í gærkvöldi 4 - 2... Rúlluðu þeim upp, glæsilegur árangur hjá strákunum.. Stefnir allt í það að þeir séu að komast upp um deild.. Og aldrei efaðist neinn um það vænti ég :) Go Huginn...
Skólinn er byrjaður aftur, og ég get sko staðfest það að það er allt morandi í busum... Við erum sko að fara að busa 100 - 120 busa, og það er ekkert grín! Maður verður alveg í fullu fangi með þetta allt saman, en það er kannski bara betra.. Feiri til að þjóna manni og gera grín af í busuninni hehehe:) Það verður vonandi gaman, að vera böööðull:) Jájájá...
Ég á afmæli ekki á morgun heldur hinn, og býst við fullt af kossum og pökkum;) Ekki nokkur spurning..
Já, þá er það helsta eiginlega upptalið held ég.. Ég ætla að reyna að vera dugleg að blogga núna í haust og leyfa landanum í útlöndum og þeir sem eru farnir suður að leika sér e-ð að fylgjast með..:) Núna ætla ég að vera myndó og setja í þvottavél og horfa á Nylon hehehe.... Bleeess á meðan...:)
Posted at 10:11 am by urduromars
|
|