Jul 14, 2004
Jæja krakkar mínir, þá er bara málið að setja allt í 5. gírinn sko... Þetta gengur ekki lenguuuuuuuur!!!!!
En allavega, FOKKING LUNGABALL UM HELGINA, djöfull verður miiiikið djammað þá... Ég get ekki einu sinni sagt ykkur það....En vá, ég er ekkert búin að skrifa í meira en mánuð eða e-ð og hef ekkert að segja.. Hvað er í gangi..?? Já maður spyr sig stundum...Lenti í tómutjóni um helgina, eyðilagði símann minn.. Og digital myndavélina þannig það verða engar djammmyndir teknar á Lunga...Djöö...En maður hefur þá bara myndirnar í minningunni er það ekki??:) En tööölum ekki meira um það...
Jú, ég er að fara til Benidorm um verlsunarmannahelgina, partýýýýýýýýý.........:) Djammdjamm, fer með Helgu litlu frænku og Pétri félaga (kærastanum hennar) og e-u fólki sem þau þekkja, en það stoppar ekkert djammið maður...;) Karókí er efsst á lista hjá mér að gera þarna úti...Og vera bresk eitt kvöld..Bara stuð..:)
En allavega, ég hvet alla til að mæta á Lungaball á laugardaginn...Svo er nottla líka djamm á föst þannig þið farið bara í útilegu börnin góð...Þið vitið hvað þið heitið ;)
En ég nenni þessu ekki lengur......SJÁUMST Á BALLLLLLLLIIIIIIII:)
Posted at 03:29 pm by urduromars
Jul 1, 2004
Vonum að þetta sé komið í lag!
Nei þetta er ekki komið í lag og ég er að verða geðveik!..Anskotinn...En maður lætur sig hafa það!...
Ég fór á Deep purple hérna fyrir nákvæmlega viku...Hey, fyrir nákvæmlega viku síðan þá var ég að labba úr Laugardagshöllinni af tónleikum...Sem voru alveg geðbiiiiilaðir...Get ekki sagt neitt annað...:) Jæja, eftir það fórum við pabbi upp á NordiceHotel þar sem við gistum...Fengum okkur nokkra drykki, fékk mér einmitt einn Cosmopolitan svona eins og þær í Sex & the city voru með...Ég var sko geðveikt fín...Algjör gella:) ...Þegar að leið á kvöldið þá komu nokkrir meðlimir Deep purple...Gítar-, bassa- og hljómborðsleikarinn...Oooog auðvitað varð maður að taka í höndina á svona snillingum...Sem ég einmitt gerði:) Ýkt gaman... Þess má einmitt að gera að bræður föður míns lentu á hörkudjammi með trommuleikaranum kvöldið áður:) En allavega, ef ég tala nú um fræga fólkið örlítið meira þá var enginn önnur en þvílíka gellan hún Shannon Elizabeth með mér á hóteli líka, var víst að keppa í golfi..:) Úff, ég var bara umkringd celebs..:)
Jæja, annars er ekki búið að gerast mikið hjá mér síðan þá...Bara búin að vinna, vinna meira og sofa. Líf mitt gengur ekki út á mikið meira en það. En svo er nú stefnt á að fara á ball á laugardaginn með stórhljómsveitinni Stuðmönnum ef maður nennir því...:)
En ég ætla að fara að sofa, bless börnin góð! ;)
Posted at 04:11 pm by urduromars
Jun 26, 2004
Þetta helvíts blogg er alveg að fara til fjandans...En allavega!!!
DEEP PURPLE VORU GEEEEEEÐVEIKIR!!!!!!!!
Nenni ekki að segja meira fyrr en þetta er komið í lag.....Myndirnar fara að koma......Vi ses...........
Posted at 03:49 pm by urduromars
May 31, 2004
Hæbb!..Ég er alveg alein heima, og þetta er búið að vera voðalega kósí hjá mér. Jájá, ég er samt eila ekkert búin að gera hérna, held voða mikið hreinu hérna bara og dagurinn í dag átti að vera svona "tiltektardagur"..Setja í þvottavél, setja í uppþvottavél, ryksuga og taka til í stofunni. Það verður gert í dag, ég lofa því, ég á engar hreinar buxur þannig þetta verður að komast í gang. Já ég held það bara. En ég get sagt ykkur það að það er sko hugsað vel um mig hérna þótt að ég sé alein heima og allir fjölskyldumeðlimir eru allir annaðhvort á Mallorca eða Costa del Sol, en það er allt í góðu lagi. Stína og Sigfríð voru svo indælar að bjóða mér í pizzu...Gulli frændi tók sig til og bauð frænku sinni í svínahamborgarahrygg af langbestu gerð:) Þannig ég kvarta ekki. Ekki annað hægt. Svo er það bara vinna vinna í vikunni, ég hlakka sko geðððveikt til..:) Og ekki lýg ég að ykkur, myndi ég gera það?? ..Hélt heldur ekki. En næstu helgi verður vonandi djammað. Sjómannadagur, þetta er vefst allt fyrir mér hvort ég eigi að fara á ball hérna með e-rri Seyðfirskri hljómsveit eða á Eskifjörð þar sem hinir einu sönnu PAPAR eru að spila. Veit ekki neitt, ekki rass í bala. En maður talar við fólkið og athugar þetta. Svo bíð ég bara eftir aðaldjammi sumarsins, LUNGA 2004 sem verður án efa mesta skemmtun:)
En já, dagskráin hérna á Garðarsvegi 18 er búin að vera mjög skemmtileg þessa helgi. Snýst aðallega um það að horfa á sjónvarpið, borða, fara í sturtu og sofa. Ekki mikið meira en það...Búin að horfa á Pretty Woman 2x, Bodyguard, Finding Nemo, Wedding Planner og fleiri fleiri góðar myndir:) Ykkur er velkomið að koma í video..Nóg til hérna:)
En ég ætla að hætta þessu...Við sjáumst bara á Lunga og Sjómannadjammi..Ekki spurning:) ....Adios...(svona til heiðurs fjölskyldunnar nota ég spænsku) :)
Posted at 07:52 am by urduromars
May 23, 2004
Jæja, maður ætti kannski að reyna að skrifa e-ð...Úff...Leggjum við í það?..Já ok...
Vil byrja á að óska öllum nýstúdentum innilega til hamingju með gærdaginn :)
Þar á meðal voru tveir fjölskyldumeðlimir, Dagný og Mamma mín:)...Gullfallegar þarna með hvítu húfuna..:) Þetta var hörkuútskrift...59 að útskrifast og þar af 13 Seyðfirðingar. Síðan var lagt í þessa líka þvílíku veislu sem var hérna heima...Fullt af kökum...Og svo fullt af afgöngum fyrir mig að borða í dag:) ...Vinna á morgun...Nenni því ekki, en ég hugsa einungis um peningana...Ekkert annað...
Svo eru foreldrar mínir og systkini að fara að stinga mig af til útlanda...Já ég verð hér ein eftir eins og ekkert sé sjálfsagðara:) ...Hehe, það verður bara gaman...
Ungfrú Ísland á uuu....laugardaginn já...mikið rétt...Jónína Brá að keppa, og á eflaust að gera það með miklum sóma...Glæsileg stelpa þarna á ferð;) Þannig ég óska henni bara góðs gengis og er alveg handviss að hún eigi eftir að rúlla þessu upp:) En ég kveð að sinni, þarf að vakna fyrir 7:00 á morgun og ætla þess vegna að fara að hvíla mig:) Blessbless....

Glæsileg er hún...Ekki spurnig:)
Posted at 04:16 pm by urduromars
May 16, 2004
Vil benda á að það koma fleiri myndir inná myndasíðuna...Neeeenni því bara ekki núna!!
Posted at 04:35 pm by urduromars
...Var bara nokkuð fínt, get ekki sagt annað. Þrátt fyrir það að Jónsi fékk bara nokkur stig og varð í 19. FOKKING SÆTI...Nú vitna ég í vitran mann; Evrópa er ómúsíkölsk. Ekki spurning. Ruslana var nú helvíti flott samt, lagið þónokkuð gott verð ég að segja:)
En kvöldið byrjaði með þvílíkum kræsingum hjá mér og Pæju, ég bakaði pizzu handa okkur, ekkert smá góða, féll allavega í góðan jarðveg hjá okkur Pæju..:) Ekki satt ?? En allavega, svo var ferðinni heitið í Egilsstaði..Átti að vera e-ð svakalegt djamm þar í bústað, en sjiitt hvað við vorum plötuð...Mér fannst bara ekkert gaman þar þannig ég kyssti bara hann Hjalta minn, fór uppí bíl og aftur á Seyðis. Ég veit, ekkert smá tilgangslaust. En reynum nú að gera gott úr þessu. Þá var ferðinni heitið á Láruna, þar var hellingur af fólki..Tek ég sem dæmi hana Guðrúnu Veigu sem lék sko á alls oddi gott fólk, segi ekki neitt neitt, hún er bara eins og hún er:) Og ég meina það á góðan hátt auðvitað:)...En ekki kaldhæðnislega á nokkurn hátt:) En aaaallavega, kvöldið var alveg ágætt, þrátt fyrir vesen og drama en við nennum ekkert að spá í það er það nokkuð...Fór heim um 5 leytið eftir alveg ágætisdjamm hérna heima í heiðardalnum. Endilega kíkiði á myndirnar sem ég tók af þessu djammi, ekki ónýtar þær:)
Eeeeeen ég ætla að hætta þessu blaðri núna og segja bara bless og benda ykkur á MYNDIRNAR:) Smá partýmynd í lokin á aðaldjammaranum í bransanum :)

Enjooooooy:)
Posted at 04:23 pm by urduromars
May 15, 2004
Já það er komið að stóru stundinni...Sem flestir íslendingar eru búnir að bíða eftir, þar á meðal ég..Jónsi stígur á stokk í Istanbúl og rrrrrrrrúllar þessu upp:) Engin vafi á því gott fólk..:) Jájájá svei mér þá...Það eru nú ekki mikið af úrvali af góðum lögum að þessu sinni skal ég segja ykkur, ég er alveg konfídent að Jónsi verði ofarlega, Grikkland hvað? Ógeðismaður sem er að syngja og alveg ömurlegt lag.
Já, skemmtilegt kvöld framundan að mér skilst...Horft á júróvisjon e-sstaðar (ekki alveg ákveðið)..Drukkið verður vonandi bjór af einhverju magni, djammað langt fram eftir morgni og so on and so on:) ...Liverpool er að fara að keppa í dag, en við erum komin í 4. sætið þannig þetta er allt í góðum höndum að nýju..:)
En ég fékk hræðilegar fréttir í dag, ÞÓRA LIND ER AÐ FARA ÚR LANDI Í SUMAR!!!!!!!!!......Hvað er það??..Þóra, geturu rétt ímyndað þér hvað ég á eftir að verða leið??...Vitandi af þér í einhverju fjarlægu landi, EKKI að koma með mér á djammið í sumar..??..Þetta verður bara ekki eins, ég mun syrgja þig lengi lengi og ég er ekki að grínast...:( En þú verður ávallt með í anda, í huga okkar allra á meðan djammi stendur..Nú fer ég greinilega á útskriftarball...:)

Þóra þú ert fallegust;)
Posted at 07:34 am by urduromars
May 14, 2004
Ég hef fundið fallegasta mann í heiminum....Ég er ástfangin....Og hér er hann....
Hann leikur Dr.Troy í Nip/Tuck...Ég elska hann:)
Meira var það ekki gott fólk...
Posted at 08:24 am by urduromars
May 13, 2004
Já já, hið langþráða sumarfrí er komið í höfn, fór í síðasta prófið mitt 11. maí, í ísl. 303! Hefði getað gengið betur en maður verður bara að bíða og vona:) Og af tilefni af sumarfríinu og soleis ákvað ég að hafa gula stafi í þetta skiptið:) Gaman að því...
En júróvisjon á laugardaginn, er orðin alveg helvíti spennt:)...Jónsi tekur þetta pooottþétt upp í nefið á sér alveg...Það verður vonandi gaman þetta kvöld, teiti, bjór, snakk, bjór, pizza, bjór, Jónsi, bjór...and so on and on...Spurning um teiti, hvar er teiti?
Gudda mín er að koma á morgun, hlakka mikið mikið til að fá hana aftur á djammið á Seyðis, þetta er bara ekki búið að vera án þín Gudda mín..Ég get alveg lofað þér því..:) Díses, ég hef ekkkkert að segja, og nenni ekki að rugla e-ð meira..Held að ég hætti þessu bara sem snöggvast...Skrifa meira síðar...Veriði sæl börnin mín..Og hafiði það gott á júróvisjon...ÁFRAM JÓNSI VÚHÚ ;)
Posted at 12:49 pm by urduromars
|
|