Entry: Jææææja, hvernig væri að blogga?? Aug 29, 2004



Já veistu hvað ég held að það sé ekki svo slæm hugmynd..:) Það er nebbla allt að gerast...

Hún Dagný Erla er stungin af til Danmerkur þar sem hún verður fram að jólum.. Og þín er saknað, alveg óheyrilega mikið. Það er ekki svo auðvelt að vera elsta barnið á heimilinu núna hehe:) Óska þér allt hið besta þarna úti..

Huginn vann Skallagrím á Borgarnesi í gærkvöldi 4 - 2... Rúlluðu þeim upp, glæsilegur árangur hjá strákunum.. Stefnir allt í það að þeir séu að komast upp um deild.. Og aldrei efaðist neinn um það vænti ég :) Go Huginn...

Skólinn er byrjaður aftur, og ég get sko staðfest það að það er allt morandi í busum... Við erum sko að fara að busa 100 - 120 busa, og það er ekkert grín! Maður verður alveg í fullu fangi með þetta allt saman, en það er kannski bara betra.. Feiri til að þjóna manni og gera grín af í busuninni hehehe:) Það verður vonandi gaman, að vera böööðull:) Jájájá...

Ég á afmæli ekki á morgun heldur hinn, og býst við fullt af kossum og pökkum;) Ekki nokkur spurning..

Já, þá er það helsta eiginlega upptalið held ég.. Ég ætla að reyna að vera dugleg að blogga núna í haust og leyfa landanum í útlöndum og þeir sem eru farnir suður að leika sér e-ð að fylgjast með..:) Núna ætla ég að vera myndó og setja í þvottavél og horfa á Nylon hehehe.... Bleeess á meðan...:)

   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments