Entry: Skóli, skóli...busar, busar! Sep 1, 2004



Við erum að tala um 100 - 120 busa í þessum brjálaða skóla. Og þetta eru sko ekkert venjulegir busar...Þeir hlýða ekki okkur böðlunum, aðallega e-rjar gelgjur sem vita ekkert útaf öllu meikinu EN allavega, þeir eru alveg snabrjálaðir og vita ekkert í sinn haus. Neineinei, þetta var nú heldur fullt gróft og ég tek þetta nú tilbaka...En það eru nú nokkrir uppreynsarseggir í þessum stóra hóp sem er ekki að fara alltof vel í böðlana.. Vonum bara að þeir eigi eftir að hugsa sinn gang og læra að HLÝÐA!!!! Og hver má taka þetta til sín sem hann vill...:)



EN ÉG ÁTTI AFMÆLI Í GÆR:)

Það er sennilega það sem skiptir öllu máli maður:) Ég átti virkilega notalegan dag í góðra vina hópi. Fórum, ég, Karen, Katla, Steinar Pálmi og Lísa Leifs út að borða á Ölduna sem var sennilega án efa besti matur sem ég hef smakkað. Mikið rosalega var þetta svakalega gott:) Ég var sko alveg að fíla mig þarna, svona fín og fáguð.. Ég fékk mér í forrétt rosalegan góðan mývatnsreyktan silung, aðalrétt nautakjöt og e-ð girnilegt gums með og svo punkturinn yfir i-ið var það franska súkkulaðikakan, með "krem búrlei" og ís. Þetta var alveg fyrsta flokks. Svo í dag fékk ég smá veislu, Ingunn og Karen voru svo sætar að baka Betty Krocker handa stelpunni sem féll í virkilega góðan farveg hjá mér og öðrum góðum. Svo misstum við Brynja okkur í SingStar sem var helvíti skemmtilegt...Ég vann oft, en hún líka..:) Við erum geggjaðar, ætlum sennilega að stofna dúet og meikaða á Íslandi...Nylon hvað skiljiði...:) Haaaahahahahaha...........................


HUGINN ER KOMIN UPP UM DEILD...:)

Sem er einnig alveg geðveik frétt....Þeir stóðu sig allllveg frrrrrábærlega strákarnir, allir bæjarbúar enn í sæluvímu..Og einhverjir kennarar einnig í ME skilst mér...Unnu Skallagrím 4 - 2...Eða samtals 8 - 4...:) ALveg frábær árangur, þeir taka síðan bara 2. deildina næsta sumar...Ekki nokkur spurning...:)

En ég ætla að fara að gera e-ð núna, nenni þessu ekki....Sjáumst áááááá ballli á föst oooooooooog PÁLI FOOOKKING ÓSKARI á laugardaginn....Þangað til næst....Bleeesss...

   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments