Entry: Dararammm..... Sep 8, 2004



Já, ég verð að segja að það er nú heldur skemmtileg helgi að baki.

Busunin var nottla algjör snilld, þar sem ég og fleiri góðir vorum böðlar að fíla okkur í tææætlur. Busagreyin vissu ekkert hvað þau áttu að gera og grétu bara úr hræðslu. Neinei ekki alveg kannski, en við vorum vopnuð ýmsum vopnum.. Aðal vopnið mitt var nú bara mysan góða sem ég lét fólkið drekka. Þetta er hollt krakkar kommon..:)  Æjæjæj, ég var samt alveg að fíla það að vera svona leiðinleg og að skipa þeim fyrir, gæti alveg eins vanist þessu sko..Er ekki einhver busi sem býðst til þess að vera þjónn minn?

En já, eftir þessa misþyrmingar á litlu busunum var haldið í smá samkundu í íbúðina hennar Lísu Leifs þar sem var pöntuð pizza, drukkin bjór og bolla í boði. En þegar að fólk var orðið heldur ölvað var haldið í teiti hjá honum Óttari... Drukkinn meiri bjór og svo haldið á ball. Ballið fannst mér alveg allt í lagi þótt að fólk hafi verið að segja að þetta hafi ekki verið neitt skemmtilegt. En mér fannst það, þrátt fyrir annarlegt ástand. Full fullt af slúðri sem kemur væntanlega fram í pésanum von bráðar þannig bíðið bara spennt.

Páll Óskar....VAR GEGGJAÐUR!!!!!! Sjiiitt hvað það var ógeðslega gaman maður, hef sennilega sjaldan skemmt mér jafn vel á balli, eða rétta orðið væri sennilega að kalla þetta diskó eða e-ð...Júróvisjónsveiflur hérna í hverju horni og alveg ógeðslega gaman maður. Og mætingin var ekki slöpp, ég bjóst við verri mætingu en svo var hún ekki. Algjör snilld...Palli, ég elska þig.

En já, svo er bara Í SVÖRTUM FÖTUM næstu helgi og allir að mæta þangað, Jónsi maður...úffff....heitur...ekkert annað. Allir að mæta í teiti, ekki verra:)

En ég nenni þessu ekki lengur, bless börnin mín...Heyrumst seinna!

   1 comments

lisa maren
September 10, 2004   06:13 AM PDT
 
heyrðu halló þetta var líka íbúðin min!

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments