|
Ég semsagt gerði ekki stakan hlut um helgina, nema það að vinna og vinna aðeins meira! Þegar foreldrar manns eru farnir á djammið á Seyðisfirði þá er alveg eins gott fyrir mann að vera bara heima hjá sér að passa börnin þeirra, sem er einmitt það sem ég gerði... Svona eiginlega, við Kæja kíktum hring á kagganum hans pabba en fyrst að lífið var heldur dautt þá ákváðum við að fara bara heim að sofa um tvö. Það var líka bara alveg eins gott, ágætt að vera laus við þynnku eina helgi. Því ég held að næsta helgi stefni í alveg eins gott djamm:) ....Allavega stefni ég á það ásamt ýmsum skjátum í heitapottspartý...Staðsetningin er leyndó, enda verður þetta nottla bara stelpudjamm sem er mjög fínt:) BEACH BOYS eru að koma til landsins hvorki meira né minna...Ééééééég þangað...:) En ég nenni þessu ekki, ég skrifa meira þegar ég hef e-ð áhrifamikið að segja..:) |
| Leave a Comment: |